
Viðbragðsaðilar komu saman
Í dag er alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa. Í ljósi tíðra slysa þar sem ungt fólk hefur beðið bana er sjónum beint að yngstu ökumönnunum að þessu sinni. Á Vesturlandi er víða komið saman. Á Akranesi komu fulltrúar allra viðbragðaðila saman við björgunarmiðstöðina við Kalmansvelli klukkan 14 og voru meðfylgjandi myndir teknar þar. Eftir myndatöku var ekinn hringur um bæinn með bláum ljósum.


