Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Ljósm. ÓHK.

Einfaldara regluverk á að flýta húsnæðisuppbyggingu og lækka byggingakostnað

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á regluverki skipulags- og byggingarmála með það að markmiði að stytta afgreiðslutíma, draga úr kostnaði og greiða fyrir húsnæðisuppbyggingu. Breytingarnar ná meðal annars til skipulagslaga, byggingarreglugerðar og byggingareftirlits. Áhersla er lögð á einfaldari stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og aukna notkun stafrænna lausna, án þess að slaka á kröfum um gæði og öryggi mannvirkja.