Stórsigur Skallagríms á Hamri í Borgarnesi

Skallagrímur vann sannfærandi sigur á Hamri, 105:83, í körfunni á föstudaginn. Borgnesingar tóku strax öll völd á heimavelli sínum og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn sýndu mikinn sóknarkraft og leiddu með 31 stigi í leikhléi, 63:32, fyrir framan 178 áhorfendur.