
Vilhelm Þorsteinsson losnaði frá bryggju.
Bryggjupollar slitnuðu í óveðri
Djúp lægð á föstudag orsakaði óveður um norðan- og austanvert landið á föstudaginn. Í ofankomu og blindhríð þurftu björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar að koma að ýmsum verkefnum norðan heiða. Í Húnavatnssýslu þurfti við bæ einn að grafa á annað hundruð kindur úr fönn, bílar sátu fastir á heiðum allt frá Bröttubrekku í vestur og austur á land og á Hornafirði þurftu björgunarsveitir að koma í veg fyrir foktjón. Litlu mátti muna að enn meira tjón yrði á Akureyrir þegar eitt stærsta skip fiskiskipaflotans losnaði frá bryggju.