
Andlát – Guðjón Þórðarson
Einn sigursælasti leikmaður og þjálfari íslenskrar knattspyrnu, Guðjón Þórðarson á Akranesi er látinn, 71 árs að aldri. Undanfarin ár hefur Guðjón glímt við erfið veikindi. Í viðtal við Ríkisútvarpið í september opnaði hann sig um baráttuna við Parkinson-sjúkdóminn. Þar sagðist hann vera í „bölvuðu basli með heilsuna“ en vonaðist til þess að ná heilsunni á það stig að hann gæti spilað golf á nýjan leik. „Ég hef nú verið betri,“ sagði hann. „Þetta eru erfiðir dagar, vikur og mánuðir. Það er tvennt sem hefur verið að hrjá mig. Annars vegar Parkinson sem ég greindist með árið 2023 og síðan hef ég verið með bakvandamál. Þetta leiðir niður í fætur og ég missi mátt,“ útskýrði hann.
Fjölmargir minnast Guðjóns Þórðarsonar enda var hann tvímælalaust með sigursælustu þjálfurum íslenskrar knattspyrnusögu og gerði garðinn frægan erlendis. Guðjón spilaði sem leikmaður lengst af fyrir heimalið sitt ÍA. Hann ólst upp á Akranesi og spilaði með ÍA frá 1972 til 1986 þar sem hann varð fimm sinnum Íslandsmeistari og jafn oft bikarmeistari. Guðjón er leikjahæstur í sögu ÍA í efstu deild.
KSÍ minnist Guðjóns og skrifar m.a: „Hann vakti verðskuldaða athygli sem þjálfari KA, en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum árið 1989. Guðjón var ráðinn þjálfari ÍA eftir sumarið 1990. Hann tók við liðinu í næstefstu deild, kom því í efstu deild við fyrsta tækifæri og gerði það að Íslandsmeisturum ári síðar. Undir stjórn Guðjóns vann ÍA deildina tvö ár í röð; 1992 og 1993, ásamt því að verða bikarmeistari 1993. Í lok tímabilsins færði Guðjón sig um set til KR þar sem hann var árin 1994 og 1995. Guðjón gerði KR að bikarmeisturum bæði árin. Hann tók að nýju við ÍA fyrir tímabilið 1996 og gerði liðið að Íslands- og bikarmeisturum. Í júní 1997 var hann svo ráðinn sem landsliðsþjálfari karlalandsliðsins. Hann stýrði A landsliði karla árin 1997-1999 og var þjálfari liðsins alla undankeppnina fyrir EM 2000, þar sem liðið náði m.a. fræknu jafntefli gegn Frakklandi í fyrsta leik þess eftir að hafa verið krýndir heimsmeistarar árið 1998.“
Guðjón tók við Stoke City á Englandi eftir að hann lét af störfum sem þjálfari íslenska landsliðsins. Hann var þjálfari liðsins allt til ársins 2002 og kom liðinu upp í næstefstu deild á síðasti ári sínu með 2-0 sigri gegn Brentford í úrslitaleik umspilsins. Jafnframt vann félagið bikarkeppni neðri deild árið 2000 er liðið vann 2-1 sigur gegn Bristol City. Önnur félög sem Guðjón þjálfaði erlendis voru Start í Noregi, Barnsley, Notts County og Crewe Alexandra á Englandi og NSÍ Runavik í Færeyjum. Á Íslandi þjálfaði hann, ásamt ÍA, KA og KR, Grindavík, BÍ/Bolungarvík og síðast með Víkingi Ólafsvík þar sem hann lauk þjálfaraferli sínum árið 2022.
„Það eru sumir menn sem verða á vegi manns á lífsleiðinni og hafa þar meiri áhrif en þeir gera sér sjálfir grein fyrir. Menn sem sjá eitthvað í öðrum sem þeir hafa jafnvel ekki komið auga á sjálfir. Menn sem kunna að laða fram það besta í fólki og skilja eftir sig minningar sem aldrei fölna. Guðjón Þórðarson var í mínum huga einn þessara manna,“ skrifaði Ólafur Adolfsson alþingismaður og fyrrum leikmaður ÍA undir stjórn Guðjóns.
Skessuhorn sendir fjölskyldu Guðjóns, vinum og samferðamönnum innilegar samúðarkveðjur.