Viðbragðsaðilar í Borgarbyggð komu saman við Bauluna í Stafholtstungum á síðasta ári og óku sem leið lá að Stafholtskirkju. Í kirkjunni var haldin minningarstund um þá sem látist hafa í umferðarslysum. Ljósm. úr safni/ Valur Snær Tryggvason

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Í dag er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Í ár er sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Að því tilefni ætla viðbragðsaðilar á Vesturlandi að hittast og halda minningarstundir, sbr. meðfylgjandi samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi:

Borgarnes:

Klukkan 14:00 ætla viðbragðsaðilar að hittast við Borgarneskirkju þar sem séra Úrsúla Árnadóttir ætlar að leiða stutta kyrrðarstund inn í kirkjunni. Þaðan munu viðbragðsaðilar aka með forgangsljós sín tendruð upp Borgarbraut og að björgunarsveitarhúsi Brákar þar sem boðið verður upp á kaffiveitingar. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í minningarstundinni eru velkomnir.

Akranes:

Klukkan 14:00 ætla viðbragðsaðilar að hittast við slökkvistöðina og aka með forgangsljósin tendruð um bæinn. 

Stykkishólmur:

Fylgdarakstur viðbragðsaðila um Stykkishólm sem endar við björgunarmiðstöðina kl. 13:00. Þar verður stutt minningarathöfn að því loknu verður boðið upp á kaffi og viðbragðsaðilar verða með tækin sín til sýnis.

Grundarfjörður:

Fylgdarakstur viðbragðsaðila um Grundarfjörð sem endar við Grundarfjarðarkirkju kl. 15:00. Í kirkjunni verður stutt minningarathöfn leidd af Séra Karen Hjartardóttur. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar og viðbragðsaðilar verða með tækin sín til sýnis fyrir utan.

Snæfellsbær:

Fylgdarakstur viðbragðsaðila um Ólafsvík sem endar við Ólafsvíkurkirkju kl. 17:00. Í Kirkjunni verður stutt minningarathöfn leidd af Séra Ægi Erni Sævarssyni. Að því loknu verður boðið upp á kaffi og viðbragðsaðilar verða með tækin sín til sýnis.

Svipmynd frá minningardeginum á Akranesi á síðasta ári. Ljósm. mm