
Þorsteinsmóti lauk með sigri sunnanmanna
Þorsteinsmótið í bridds var spilað í Logalandi í gær. Mótið er haldið til minningar um Þorstein Pétursson kennara og briddsspilara frá Hömrum í Reykholtsdal sem um árabil beitti sér fyrir framgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Þorsteinsmót er að venju stærsta briddsmót í landshlutanum og eitt af stærri mótum sem haldin eru á landsbyggðinni. Þátttaka var góð. Fullbókað var á mótið, en vegna forfalla sem að hluta til skrifast á veður og færð spiluðu einungis 45 pör. Spiluð voru 44 spil, ellefu umferðir. Flestir komu spilarar af höfuðborgarsvæðinu en heimafólk gerði sitt til að blanda sér í baráttuna. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, en einnig mörg útdráttarverðlaun sem styrktaraðilar mótsins lögðu til.
Sigurvegarar með býsna örugga forystu urðu þeir Vignir Hauksson og Guðjón Sigurjónsson með 64,45% skor. Í öðru sæti voru Hermann Friðriksson og Gunnlaugur Sævarsson með 59,96% og þriðju Magnús Sverrisson og Halldór Þorvaldsson með 59,63%.
Gestgjafarnir í Bridgefélagi Borgarfjarðar voru ekki mikið að blanda sér í toppbaráttuna, en náðu engu að síður 4. 6., 10. og 12. sæti. Guðmundur Ólafsson og Hallgrímur Rögnvaldsson, sem jafnan hafa blandað sér í toppbaráttuna, urðu í fjórða sæti með 59,09% og þeir Logi Sigurðsson og Heiðar Árni Baldursson í sjötta sæti með 55,68%.
Þórður Ingólfsson frá Straumfjarðartungu var sem fyrr mótsstjóri en skipuleggjandi og drifkraftur í að halda mótið er Ágúst Þorsteinsson frá Hömrum. Kvenfélag Reykdæla sá um veitingar en hlaðborð þeirra í hálfleik er talið tryggja þátttöku fólks sem leggur á sig langa ferð til að njóta dagsins.
