Fréttir

true

Sóttu slasaðan hestamann

Björgunarsveitir í Borgarfirði voru laust eftir klukkan 10 í gærmorgun kallaðar til vegna einstaklings sem fallið hafði af hestbaki og slasast í Þrengslagili inn af Sanddal í Norðurárdal. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð til og flutti hún hinn slasaða á sjúkrahús í Reykjavík.Lesa meira

true

Ræða fyrirhugaðar hafrannsóknir í Hvalfirði á opnum fundum

Röst sjávarrannsóknasetur boðar til tveggja opinna funda í Kjós og Hvalfjarðarsveit í næstu viku þar sem kynntar verða fyrirhugaðar rannsóknir setursins í Hvalfirði. Þar verður meðal annars fjallað um rannsókn á því hvort hægt sé að auka upptöku sjávar á koldíoxíði úr andrúmslofti með því að auka basavirkni sjávar. Fyrri fundurinn verður haldinn mánudaginn 28.…Lesa meira

true

Styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2027 er hafin. Af því tilefni auglýsir sveitarfélagið eftir umsóknum um styrki vegna verkefna á næsta fjárhagsári. Félög, samtök og aðrir sem hyggjast sækja um styrk frá Snæfellsbæ eru hvött til að skila umsóknum til bæjarritara á bæjarskrifstofunni fyrir 1. nóvember næstkomandi. „Félagasamtök sem fengu…Lesa meira

true

Borgarnes með víðfeðmasta þjónustusvæðið á Vesturlandi

Út er komin ný Glefsa, rafrænt fréttabréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Að þessu sinni er fjallað um þjónustu- og atvinnusókn til Vesturlands og skoðað hvaðan íbúar sækja þjónustu og atvinnu til helstu þéttbýliskjarna á Vesturlandi. Umfjöllunin byggir á þjónustukönnun Byggðastofnunar frá árinu 2024. Niðurstöðurnar benda til þess að Borgarnes sé öflugasti þjónustukjarninn á Vesturlandi þegar…Lesa meira

true

Fullt út úr dyrum þegar nýr nammibar var opnaður í Einarsbúð

Hin 92 ára Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi hefur staðið í breytingum að undanförnu. Þessi eina einkarekna matvöruverslun á svæðinu byggir á gömlum merg og nýtur tryggðar viðskiptavina sem kunna að meta hið persónulega viðmót og ekki síst kjöt- og fiskborðið. Nú er búið að stórauka úrval í kjötborði, færa til innréttingar og fjölga vörutegundum…Lesa meira

true

Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð

Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Einnig eru veittir stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfsemi á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar með hliðsjón af markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Vesturlands. Umsóknarfrestur er til kl. 14 miðvikudaginn 21. október og er umsóknum skilað rafrænt…Lesa meira

true

Skuldir landsmanna aukast en eignir vaxa hraðar

Meðalskuldir íslenskra fjölskyldna námu 14,7 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 3,5% að nafnvirði frá árinu 2024. Á sama tíma jukust eignir fjölskyldna talsvert meira og námu að meðaltali 60,4 milljónum króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þrátt fyrir auknar skuldir lækkaði skuldahlutfall heimilanna miðað við stærð hagkerfisins. Heildarskuldir fjölskyldna…Lesa meira

true

Ný vegtenging við Faxabraut

Verktakafyrirtækið Þróttur vinnur þessi misserin að gatnagerð á Sementsreitnum á Akranesi. Á þessari mynd, sem tekin var í morgun, má meðal annars sjá móta fyrir götu sem tengja mun Merkigerði í eldri bæjarhlutanum við Faxabraut. Á kortasjá á vef Akraneskaupstaðar er hægt að kalla fram ýmsar teikningar sem eru hluti deiliskipulags reitsins, vilji fólk átta…Lesa meira

true

Borgarverk fær vinnu við brúargerð og veg við Árnes

Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í smíði nýrrar 204 metra langrar brúar yfir Þjórsá á móts við Árnes á Suðurlandi og lagningu 7,4 km Búðafossvegar. Vegurinn tengir Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra. Tilboð Borgarverks hljóðaði upp á liðlega 2,5 milljarða króna og var 87% af kostnaðaráætlun, sem var…Lesa meira

true

Íþróttasagan verður rifjuð upp á göngu um Akranes á miðvikudaginn

Sérstök íþróttasöguganga verður farin um Akranes miðvikudagin 30. september í tilefni 80 ára afmælis Íþróttabandalags Akraness. Vakin er athygli á að í fyrstu fréttum og tilkynningum vegna viðburðarins var farin dagavillt og gangan sögð farin á þriðjudegi, það leiðréttist hér með. Kellingar kunna vel að blása lífi í liðna tíð og munu að þessu sinni…Lesa meira