Kellingar munu leiða gönguna. Ljósm. mm

Íþróttasagan verður rifjuð upp á göngu um Akranes á miðvikudaginn

Sérstök íþróttasöguganga verður farin um Akranes miðvikudagin 30. september í tilefni 80 ára afmælis Íþróttabandalags Akraness. Vakin er athygli á að í fyrstu fréttum og tilkynningum vegna viðburðarins var farin dagavillt og gangan sögð farin á þriðjudegi, það leiðréttist hér með. Kellingar kunna vel að blása lífi í liðna tíð og munu að þessu sinni leiða þátttakendur um söguslóðir íþróttalífsins á Skaganum.

ÍA fagnar 80 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni verður sjónum beint að þeirri miklu íþróttasögu sem orðið hefur samofin sögu bæjarins og sjálfsmynd Skagamanna. Á göngunni verður meðal annars rifjuð upp saga afreksfólks, frumkvöðla og sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum til íþróttastarfsins, auk þess sem fjallað verður um mannvirki og staði sem gegnt hafa mikilvægu hlutverki í gegnum tíðina. Kellingarnar hafa á undanförnum árum vakið athygli fyrir sögugöngur sínar um Akranes þar sem fróðleikur og skemmtun fara saman. Þær hafa áður boðið upp á göngu um íþróttasögu bæjarins við góðar undirtektir.

Gangan hefst kl. 17 við gamla Iðnskólann við Skólabraut og tekur um eina og hálfa klukkustund. Þaðan verður haldið um bæinn og endað á íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum, þar sem boðið verður upp á kaffi og kleinur að göngu lokinni. Þannig gefst Skagamönnum og öðrum áhugasömum tækifæri til að sameina hreyfingu og fróðleik og rifja um leið upp brot úr 80 ára íþróttasögu ÍA.