Myndin sýnir styrkþega úr Uppbyggingarsjóði í ársbyrjun 2025. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð

Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til fjölbreyttra verkefna á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar. Einnig eru veittir stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfsemi á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar með hliðsjón af markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Vesturlands. Umsóknarfrestur er til kl. 14 miðvikudaginn 21. október og er umsóknum skilað rafrænt í gegnum umsóknargátt Rannís. Umsækjendur eru hvattir til að leita ráðgjafar hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV, við undirbúning umsókna. Sigursteinn Sigurðsson veitir ráðgjöf vegna menningarverkefna, þar á meðal verkefna-, stofn- og rekstrarstyrkja. Ólöf Guðmundsdóttir, Helga Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Tryggvadóttir veita ráðgjöf vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Nánari upplýsingar um sjóðinn, úthlutunarreglur og umsóknarferlið má finna á vef SSV. Meðfylgjandi mynd er af styrkþegum í ársbyrjun 2025.