Skuldir landsmanna aukast en eignir vaxa hraðar

Meðalskuldir íslenskra fjölskyldna námu 14,7 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 3,5% að nafnvirði frá árinu 2024. Á sama tíma jukust eignir fjölskyldna talsvert meira og námu að meðaltali 60,4 milljónum króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þrátt fyrir auknar skuldir lækkaði skuldahlutfall heimilanna miðað við stærð hagkerfisins. Heildarskuldir fjölskyldna námu 69,5% af vergri landsframleiðslu árið 2025, sem er 1,6 prósentustigum lægra hlutfall en árið áður. Hlutfallið hefur ekki verið lægra síðan árið 2001. Í tölunum er miðað við samanlagðar skuldir fjölskyldu, þar á meðal fasteignalán og aðrar skuldbindingar. Meðaltalið nær jafnframt til allra fjölskyldna, einnig þeirra sem skulda ekkert.