Ræða fyrirhugaðar hafrannsóknir í Hvalfirði á opnum fundum

Röst sjávarrannsóknasetur boðar til tveggja opinna funda í Kjós og Hvalfjarðarsveit í næstu viku þar sem kynntar verða fyrirhugaðar rannsóknir setursins í Hvalfirði. Þar verður meðal annars fjallað um rannsókn á því hvort hægt sé að auka upptöku sjávar á koldíoxíði úr andrúmslofti með því að auka basavirkni sjávar. Fyrri fundurinn verður haldinn mánudaginn 28. september í Félagsgarði (Dreng) í Kjósarhreppi og sá síðari miðvikudaginn 30. september í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit. Báðir hefjast fundirnir kl. 19:30.