Ný vegtenging við Faxabraut

Verktakafyrirtækið Þróttur vinnur þessi misserin að gatnagerð á Sementsreitnum á Akranesi. Á þessari mynd, sem tekin var í morgun, má meðal annars sjá móta fyrir götu sem tengja mun Merkigerði í eldri bæjarhlutanum við Faxabraut. Á kortasjá á vef Akraneskaupstaðar er hægt að kalla fram ýmsar teikningar sem eru hluti deiliskipulags reitsins, vilji fólk átta sig á hvernig hið nýja hverfi mun líta út.