Sóttu slasaðan hestamann

Björgunarsveitir í Borgarfirði voru laust eftir klukkan 10 í gærmorgun kallaðar til vegna einstaklings sem fallið hafði af hestbaki og slasast í Þrengslagili inn af Sanddal í Norðurárdal. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð til og flutti hún hinn slasaða á sjúkrahús í Reykjavík.