Viktor, Ísak og Eiríkur voru fyrstu nammibars viðskiptavinirnir í Einarsbúð.

Fullt út úr dyrum þegar nýr nammibar var opnaður í Einarsbúð

Hin 92 ára Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi hefur staðið í breytingum að undanförnu. Þessi eina einkarekna matvöruverslun á svæðinu byggir á gömlum merg og nýtur tryggðar viðskiptavina sem kunna að meta hið persónulega viðmót og ekki síst kjöt- og fiskborðið. Nú er búið að stórauka úrval í kjötborði, færa til innréttingar og fjölga vörutegundum í versluninni. Nýjasta viðbótin er síðan stór nammibar sem opnaður var á slaginu klukkan 13 í dag. Skemmst er frá því að segja að verslunin fylltist af fólki sem valdi úr 80 tegundum af nammi og setti í poka. 50% afsláttur verður af nammibarnum á föstudögum.

Þeir Viktor, Ísak og Eiríkur, nemendur í Grundaskóla voru á leið á fótboltaæfingu og urðu fyrstu viðskiptavinirnir á nammibarnum. Feðgarnir Guðni og Einar í Einarsbúð gáfu þeim föstudagsnammið frítt í tilefni þessa.

Hluti af starfsfólkinu í Einarsbúð skömmu áður en nammibarinn var opnaður