
Borgarnes með víðfeðmasta þjónustusvæðið á Vesturlandi
Út er komin ný Glefsa, rafrænt fréttabréf Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Að þessu sinni er fjallað um þjónustu- og atvinnusókn til Vesturlands og skoðað hvaðan íbúar sækja þjónustu og atvinnu til helstu þéttbýliskjarna á Vesturlandi. Umfjöllunin byggir á þjónustukönnun Byggðastofnunar frá árinu 2024. Niðurstöðurnar benda til þess að Borgarnes sé öflugasti þjónustukjarninn á Vesturlandi þegar horft er til landfræðilegrar útbreiðslu þjónustusóknar. „Þátttakendur frá 25 stöðum sögðust sækja þjónustu til Borgarness og þar af voru 15 staðir utan Vesturlands. Eins og gefur að skilja er sérstaklega sterk þjónustusóknin úr nágrenni Borgarness. Um 82% þátttakenda úr dreifbýli Borgarfjarðar sögðust sækja þjónustu þangað, 46% úr Eyja- og Miklaholtshreppi og um þriðjungur þátttakenda úr dreifbýli Dalabyggðar og Reykhólasveitar.“