
Nýja Þjórsárbrúin kemur skammt ofan við eyjuna Árnes, sem sést ofarlega fyrir miðri mynd. Efst í kvíslinni hægra megin er Búðafoss. Tölvugerð mynd: Vegagerðin
Borgarverk fær vinnu við brúargerð og veg við Árnes
Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í smíði nýrrar 204 metra langrar brúar yfir Þjórsá á móts við Árnes á Suðurlandi og lagningu 7,4 km Búðafossvegar. Vegurinn tengir Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra. Tilboð Borgarverks hljóðaði upp á liðlega 2,5 milljarða króna og var 87% af kostnaðaráætlun, sem var upp á rétt rúma 2,9 milljarða. Tilboðið var það eina sem var undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar en fjögur fyrirtæki sendu inn hærri boð. Næstlægsta boð áttu ÞG-verktakar, upp á liðlega þrjá milljarða króna og var það fimm prósentum yfir kostnaðaráætlun. Auk þess áttu Ístak, PK Verk í Hafnarfirði, Eykt / Fossvélar / Suðurverk og ÞG verktakar tilboð í verkefnið.