Fréttir

true

Nokkrar ár hafa bætt sig verulega frá síðasta sumri

Veiðin er víða mjög góð í ánum á Vesturlandi og bæting í þeim flestum frá því í fyrra. Nú hefur rignt talsvert og fiskurinn komið í miklum mæli í árnar. Víða er því mikið af fiski eins til dæmis í Þverá og Kjarará í Borgarfirði, en áin skilaði tæplega þúsund löxum meira nú en í…Lesa meira

true

Þrír nýir bekkir í Akraneskirkjugarði

Kirkjugarðurinn í Görðum á Akranesi hefur fengið þrjá bekki að gjöf frá tveimur líknarfélögum á Akranesi. Kiwanisklúbburinn Þyrill gaf einn bekk en Slysavarnadeildin Líf tvo. Bekkjunum hefur þegar verið komið fyrir á völdum stöðum í garðinum þar sem gestir geta tyllt sér niður og notið kyrrðarinnar. Bekkirnir eru kærkomin viðbót og munu nýtast þeim fjölmörgu…Lesa meira

true

Allt að 474 milljónir til að efla farsæld barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld og öryggi barna. Allt að 474 milljónir króna geta þannig verið til úthlutunar og er umsóknarfrestur til 13. október. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og eiga jafnframt…Lesa meira

true

Ýmsar áskoranir sem snerta lýðheilsu barna og ungmenna

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um nýjar lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna hefur lokið störfum með skýrslu til ráðherra. Hún lýsir fjölþættum áskorunum sem tengjast og geta aukið áhrif hver á aðra. Gögnin sem byggt er á sýna jafnframt að aðstæður barna skipta miklu; líðan, lífsánægja og félagstengsl barna sem telja sig búa við…Lesa meira

true

Frá plastskóflum að glæsilegum leikskóla

Leikskólinn Garðasel á Akranesi fagnar um þessar mundir 35 ára afmæli. Af því tilefni var slegið upp sannkölluðu afmælisfjöri þar sem börn og starfsfólk mættu í búningum eða náttfötum, sungu saman í salnum og skelltu sér síðan á ball. Þá var einnig boðið upp á pizzu og afmælisköku. Saga Garðasels nær aftur til þess tíma…Lesa meira

true

Íbúar mótmæla stækkun grenndarstöðvar við Dalbraut

Íbúar við Esjuvelli og Dalbraut á Akranesi mótmæla harðlega hugmyndum um að sameina grenndarstöðvar bæjarins á einum stað við Dalbraut, þétt við íbúðabyggð. Sextán íbúar hafa undirritað mótmælabréf sem sent var formanni skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar og bæjarstjórn. Þeir segja nú þegar mikið ónæði fylgja grenndarstöðinni og óttast að það aukist til muna verði áformin…Lesa meira

true

Soffíur áttu endurfundi á fæðingarheimilinu

Fjölmenni kom saman í og við gamla verkstæðishúsið í Reykholti á sunnudaginn. Tilefnið var að sýna þar tvær rútur sem byggt var yfir á verkstæðinu fyrir rúmlega fimm og sex áratugum síðan. Nýlega var lokið við endurgerð Soffíu III en nokkur ár eru síðan Soffía II var gerð upp og fór á götuna sem ný.…Lesa meira

true

Stjórnendur efla leiðtogafærni

Allir stjórnendur Borgarbyggðar taka um þessar mundir þátt í vinnustofu sem miðar að því að efla leiðtogafærni og styrkja viðverustjórnun innan sveitarfélagsins. Leiðbeinandi er Helena Jónsdóttir, klínískur sálfræðingur og sérfræðingur hjá Mental ráðgjöf. Á vinnustofunni er meðal annars fjallað um samræmd vinnubrögð stjórnenda, regluleg innlit og markvissa eftirfylgni með starfsfólki. Sérstök áhersla er lögð á…Lesa meira

true

Réttað í Arnarhólsrétt

Réttað var í Arnarhólsrétt í Helgafellssveit í gær. Líf og fjör var í réttinni þegar bændur og aðstoðarfólk komu saman til að draga fé í dilka. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Guðrún Svana Pétursdóttir fréttaritari Skessuhorns tók.Lesa meira

true

Réttað í Snæfellsbæ

Fjölmenni var í réttunum í Snæfellsbæ um liðna helgi en réttað var á þremur stöðum; Ólafsvík, Rifi og í Tungurrétt. Veður var hið besta sem gerði leitarmönnum og bændum hægara um vik með smalamennskurnar og góðar heimtur.Lesa meira