Jónas Hagan með flottan hæng úr Straumfjarðará.

Nokkrar ár hafa bætt sig verulega frá síðasta sumri

Veiðin er víða mjög góð í ánum á Vesturlandi og bæting í þeim flestum frá því í fyrra. Nú hefur rignt talsvert og fiskurinn komið í miklum mæli í árnar. Víða er því mikið af fiski eins til dæmis í Þverá og Kjarará í Borgarfirði, en áin skilaði tæplega þúsund löxum meira nú en í fyrra.