
Lífarkonur afhenda bekkina. Frá vinstri: Hallfríður Jóna Jónsdóttir, Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, Lilja Birkisdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Valgerður Guðbjörnsdóttir allar frá Slysavarnadeildinni Líf. Lengst til hægri er Anna Kristjánsdóttir kirkjugarðsvörður. Ljósm. Akraneskirkja
Þrír nýir bekkir í Akraneskirkjugarði
Kirkjugarðurinn í Görðum á Akranesi hefur fengið þrjá bekki að gjöf frá tveimur líknarfélögum á Akranesi. Kiwanisklúbburinn Þyrill gaf einn bekk en Slysavarnadeildin Líf tvo. Bekkjunum hefur þegar verið komið fyrir á völdum stöðum í garðinum þar sem gestir geta tyllt sér niður og notið kyrrðarinnar. Bekkirnir eru kærkomin viðbót og munu nýtast þeim fjölmörgu sem þangað leggja leið sína, hvort sem er til að vitja leiða ástvina eða njóta stundar í rólegu umhverfi.