
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Stjórnendur efla leiðtogafærni
Allir stjórnendur Borgarbyggðar taka um þessar mundir þátt í vinnustofu sem miðar að því að efla leiðtogafærni og styrkja viðverustjórnun innan sveitarfélagsins. Leiðbeinandi er Helena Jónsdóttir, klínískur sálfræðingur og sérfræðingur hjá Mental ráðgjöf. Á vinnustofunni er meðal annars fjallað um samræmd vinnubrögð stjórnenda, regluleg innlit og markvissa eftirfylgni með starfsfólki. Sérstök áhersla er lögð á hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu eftir langvarandi fjarveru og hvernig stjórnendur geti brugðist faglega við krefjandi aðstæðum.