
Féð dregið í dilka í Ólafsvíkurrétt. Texti og myndir: AF
Réttað í Snæfellsbæ
Fjölmenni var í réttunum í Snæfellsbæ um liðna helgi en réttað var á þremur stöðum; Ólafsvík, Rifi og í Tungurrétt. Veður var hið besta sem gerði leitarmönnum og bændum hægara um vik með smalamennskurnar og góðar heimtur.