Nýr kafli hófst í sögu Garðasels í janúar 2023 þegar starfsemin flutti í nýtt og mun stærra húsnæði við Asparskóga. Ljósm. Akraneskaupstaður.

Frá plastskóflum að glæsilegum leikskóla

Leikskólinn Garðasel á Akranesi fagnar um þessar mundir 35 ára afmæli. Af því tilefni var slegið upp sannkölluðu afmælisfjöri þar sem börn og starfsfólk mættu í búningum eða náttfötum, sungu saman í salnum og skelltu sér síðan á ball. Þá var einnig boðið upp á pizzu og afmælisköku.