Soffía III og Soffía II hittust eftir 44 ára aðskilnað framan við verkstæðishúsið í Reykholti. Texti og myndir: MM

Soffíur áttu endurfundi á fæðingarheimilinu

Fjölmenni kom saman í og við gamla verkstæðishúsið í Reykholti á sunnudaginn. Tilefnið var að sýna þar tvær rútur sem byggt var yfir á verkstæðinu fyrir rúmlega fimm og sex áratugum síðan. Nýlega var lokið við endurgerð Soffíu III en nokkur ár eru síðan Soffía II var gerð upp og fór á götuna sem ný. Eftir það hefur hún fengið ýmis hlutverk og tilfallandi verkefni, m.a. í heimildamyndunum um Vigdísi Finnbogadóttur. Varðveisla þessara tveggja hópferðabíla er hluti af merkri atvinnusögu í héraði sem stóð í tæpan aldarfjórðung. Verkefnið vekur athygli á hversu miklu er hægt að áorka með vel skipulögðu og samstilltu átaki fórnfúsra sjálfboðaliða sem lagt hafa hönd á plóg. Því var hvíslað að blaðamanni að ef greiða hefði þurft fyrir vinnu við endurgerð bílanna hefði hvor um sig kostað um 30 milljónir króna.