
Allt að 474 milljónir til að efla farsæld barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld og öryggi barna. Allt að 474 milljónir króna geta þannig verið til úthlutunar og er umsóknarfrestur til 13. október. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og eiga jafnframt að styðja við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Áhersla er meðal annars lögð á forvarnir, snemmtækan stuðning og að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.