Ýmsar áskoranir sem snerta lýðheilsu barna og ungmenna

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um nýjar lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna hefur lokið störfum með skýrslu til ráðherra. Hún lýsir fjölþættum áskorunum sem tengjast og geta aukið áhrif hver á aðra. Gögnin sem byggt er á sýna jafnframt að aðstæður barna skipta miklu; líðan, lífsánægja og félagstengsl barna sem telja sig búa við erfiða fjárhagsstöðu, eru lakari en meðal annarra jafnaldra.