
Fyrirtækið Stafnafell í Snæfellsbæ er þessa dagana að lengja sjóvörnina utan við Ólafsvíkurenni. Verkið er unnið fyrir Vegagerðina. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir að rofvörn og fyllingar verði bættar. „Um 50 metrar að núverandi grjótfláa verður endurbyggður auk þess sem sjóvarnargarðurinn verður lengdur um 330 metra til vesturs.“ Kristinn segir að efnið sæki Stafnafell í grjótnámuna…Lesa meira








