Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm

Ungt listafólk hvatt til sköpunar í Hvalfjarðarsveit

Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar kallar eftir listaverkum frá börnum og ungmennum í sveitarfélaginu, 18 ára og yngri. Verkin verða sýnd á Listasýningu unga fólksins sem haldin verður í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar í tengslum við Barnamenningarhátíð Vesturlands í október.