
Eins og sjá má þá var mikil gleði þegar nemendur af eldra stigi þustu í gegnum rásmarkið en hérna eru þeir Benni og Steinar fremstir á meðal jafningja. Ljósmyndir: Peto Bence
Litrík gleði í litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar – myndasyrpa
Þriðjudaginn 8. september var árlegu litahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar hleypt af stað með tilheyrandi fjöri. Grunnskólinn stendur fyrir hlaupinu en allir bæjarbúar eru þátttakendur. Til að mynda voru einhverjar litastöðvar mannaðar af fyrirtækjum bæjarins og aðrar af eldri borgurum og nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Veðrið lék við hlauparana og var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér konunglega. Peto Bence nemandi í FSN var á ferðinni með myndavélina og tók þessar skemmtilegu myndir fyrir Skessuhorn.