
Hér er unnið við tengingar á rafmagni. Ljósm. AF
Framkvæmdir við Ólafsbraut í Ólafsvík
Talsverðar framkvæmdir eru nú í gangi við Ólafsbraut, stofnveginn um Ólafsvík. Þar sem unnið við endurnýjun lagna og gangstétta. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að fjórir aðilar komi að verkefninu. Rarik endurnýjar heimtaugar í ljósastaura, Vegagerðin kemur að gatnagerð, Míla að lagningu ljósleiðara og Snæfellbær að endurnýja gangstétta. „Við reynum að hafa sem minnsta röskun fyrir íbúa við götuna og er áætlað að þessari framkvæmd verði lokið fyrir næstu mánaðamót,“ segir Kristinn.