
Unnið við að bæta sjóvörnina. Ljósm. af
Styrkja sjóvörnina við Ólafsvíkurenni
Fyrirtækið Stafnafell í Snæfellsbæ er þessa dagana að lengja sjóvörnina utan við Ólafsvíkurenni. Verkið er unnið fyrir Vegagerðina. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir að rofvörn og fyllingar verði bættar. „Um 50 metrar að núverandi grjótfláa verður endurbyggður auk þess sem sjóvarnargarðurinn verður lengdur um 330 metra til vesturs.“ Kristinn segir að efnið sæki Stafnafell í grjótnámuna við Höfðaskarð en útlögn grjóts og sprengds kjarna er 12 þúsund rúmmetrar. Verkinu mun ljúka á næstu dögum.