
Sigrún Ósk og Guðmundur stýra nýjum spurningaþætti á RUV
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur látið af starfi upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar og hefur ráðið sig til starfa hjá Ríkisútvarpinu. Þar mun hún ásamt Guðmundi Pálssyni stýra nýjum spurningaþætti í sjónvarpi; Landsleikar, sem verða í beinni útsendingu á laugardagskvöldum þar sem bæjarfélög etja kappi. Þættirnir hefja göngu sína síðar í þessum mánuði. „Þetta verður samsuða af spurningum, þrautum, heilabrotum og harðri keppni,“ segir Sigrún Ósk sem greindi frá þessu nýja verkefni á FB.