Fulltrúar LIFE verkefna víðsvegar að úr Evrópu, Nönnu má sjá á miðri mynd. Ljósm. Grundarfjarðarbær.

Nanna Vilborg fulltrúi Íslands í pallborði í Eistlandi

Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála og LIFE-Icewater hjá Grundarfjarðarbæ, var fulltrúi Íslands í pallborðsumræðum á Nordic-Baltic LIFE ráðstefnunni sem nýverið fór fram í Vihula í Eistlandi. Ráðstefnan er árlegur samráðsvettvangur LIFE-verkefna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum þar sem sérfræðingar, sveitarfélög og stofnanir bera saman bækur sínar um náttúruvernd, endurheimt og sjálfbærar lausnir.