
Hópurinn sem ræddi vegamál í Dölum. Ljósm. aðsend
Miklar endurbætur framundan á Vestfjarðarvegi um Dali
Sveitarstjórnarfulltrúar, sveitarstjóri og starfsmenn Dalabyggðar áttu nýverið samráðsfund með svæðisstjóra og stjórnendum Vegagerðarinnar á Vestursvæði. Fundurinn var haldinn að frumkvæði sveitarstjórnar Dalabyggðar með það að markmiði að fara yfir stöðu samgangna- og innviðamála í sveitarfélaginu, ræða helstu áskoranir, forgangsverkefni næstu ára og efla áfram gott samstarf sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar.