
Ásgerður Hafdís ráðin skipulagsfulltrúi
Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar og tekur hún til starfa 1. október næstkomandi. Ásgerður er byggingarfræðingur að mennt frá Horsens í Danmörku og er jafnframt að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði við LbhÍ. Hún býr yfir reynslu af skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviðinu. Meðal annars hefur hún tekið þátt í endurskoðun aðalskipulags, gerð nýrra deiliskipulaga og breytingum á þeim, útgáfu framkvæmdaleyfa og grenndarkynningum vegna byggingarleyfa. Þá hefur hún átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengdum skipulagsmálum.