Fréttir

true

Hlutu styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ

Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær. Styrkþegar úr sjóðnum frá upphafi eru nú yfir 500 talsins. Sjóðurinn styður afreksnema til háskólanáms…Lesa meira

true

Útskolun Grábrókarveitu hefst í dag

Í dag, þriðjudaginn 1. septembar hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er. Áætlað er að vinnan taki 2–3 vikur. „Á meðan útskolun stendur yfir má gera ráð fyrir lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi. Útskolunin getur einnig valdið gruggi í…Lesa meira

true

Góður árangur Skagafólks í ungmennalandsliði í keilu

Íslenska ungmennalandsliðið í keilu lauk um helgina keppni á Youth Triple Crown 2026 sem fram fór í Ayr í Skotlandi. Íslensku keppendurnir stóðu sig vel á mótinu og fengu dýrmæta reynslu í keppni við öflug ungmennalandslið frá hinum þátttökuþjóðunum sem voru England, Írland og Skotland. Youth Triple Crown eru eins konar vináttuleikar í keilu þar…Lesa meira

true

Yfir tíu prósenta hækkun eldsneytisverðs frá miðnætti

Í maí á þessu ári samþykkti Alþingi að lækka tímabundið virðisaukaskatt af eldsneyti úr 24% í 11%. Það var að sögn viðleitni stjórnvalda til að draga úr verðbólgu. Frá og með 1. september var lækkunin dregin til baka. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna líkti aðgerðinni í sjónvarpsfréttum Sýnar í gærkvöldi við að pissa í skóinn sinn…Lesa meira

true

Sex sveitarfélög sameinast um Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu verður lagður fram til kynningar á 449. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 4. september nk. Samkvæmt honum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðilar að samstarfinu ásamt Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Samstarfið mun bera heitið Barnaverndarþjónusta Vesturlands og nær því til sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Núverandi…Lesa meira

true

Blóðgjöf óháð kynhneigð

Í dag, 1. september, tók gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem felur í sér samræmdar reglur um blóðgjöf fyrir alla einstaklinga, óháð kyni eða kynhneigð. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir þetta langþráðan áfanga: „Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en…Lesa meira

true

Akranes fær yfirbragð níunda áratugarins vegna kvikmyndatöku

Akranes mun fá nokkuð breytt yfirbragð dagana 15.–23. september þegar tökur á þýskri kvikmynd fara fram á nokkrum stöðum um bæinn. Kvikmyndin gerist á níunda áratug síðustu aldar og verða því ákveðnar götur, svæði og mannvirki tímabundið færð í búning þess tíma. Íbúar og gestir mega því eiga von á að sjá ýmislegt óvenjulegt á…Lesa meira

true

Hjördís er nýr formaður FKA á Vesturlandi

Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin síðastliðinn laugardag á aðalfundi félagsins. Fundurinn fór fram á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar var Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi, kosin nýr formaður félagsins. Ásamt henni í stjórn eru Gyða Steinsdóttir fjármála- og skrifstofustjóri í Stykkishólmi sem er gjaldkeri, Steinunn…Lesa meira

true

Baldvin bjargaði dýrmætu stigi á síðustu stundu

Mikil dramatík var á Hlíðarenda í gærkveldi þegar ÍA tryggði sér 2:2 jafntefli gegn Val í Bestu deild karla í fótbolta. Baldvin Þór Berndsen varð hetja Skagamanna þegar hann skallaði boltann í netið á fimmtu mínútu uppbótartíma og tryggði ÍA afar dýrmætt stig í baráttunni um sæti í efri hluta deildarinnar. Skagamenn byrjuðu betur og…Lesa meira

true

Tæplega fimmti hver íbúi kaus utan kjörfundar

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðastliðinn laugardag er fróðlegt að skoða tölur um kjörsókn. Flestir íbúar í Norðvesturkjördæmi búa á Akranesi. Þar voru 6.056 á kjörskrá og var heildar kjörsókn 82,83%, eða nærri meðaltali á landsvísu, sem var 82,5%. Fjórar kjördeildir eru á Akranesi og var kosningaþátttaka í þeim á kjördag frá 57,8% og upp í 67,61%. Kosningaþátttaka…Lesa meira