Tankað á vinnubílinn. Ljósm. ÓHK

Yfir tíu prósenta hækkun eldsneytisverðs frá miðnætti

Í maí á þessu ári samþykkti Alþingi að lækka tímabundið virðisaukaskatt af eldsneyti úr 24% í 11%. Það var að sögn viðleitni stjórnvalda til að draga úr verðbólgu. Frá og með 1. september var lækkunin dregin til baka. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna líkti aðgerðinni í sjónvarpsfréttum Sýnar í gærkvöldi við að pissa í skóinn sinn til að fá tímabundna hlýnun á tærnar. Nú muni því snöggkólna á tásunum á ný og fóðra verðbólguna. Stjórnvöld greiddu Samkeppniseftirlitinu sérstaklega fyrir að vakta það hvort olíufélögin skiluðu lækkuninni til neytenda. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins, sem gefið var út í byrjun júlí, kom fram að ekki væri hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hefði í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði. Þar kom einnig fram að ýmsum spurningum væri enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.

Frá miðnætti í gærkvöldi hefur verð á eldsneyti almennt hækkað um 23 til 27 krónur lítrinn. Hér á Vesturlandi er verð á bensíni samkvæmt síðunni gsmbensin.is lægst hjá Orkunni í Borgarnesi; 224,70 krónur, en hæst á átta bensínstöðvum á Vesturlandi, allt frá Olís við Esjubraut á Akranesi, til útsölustaða á Snæfellsnesi og Dölum. Verð á lítra af díselolíu er jafnframt lægst hjá Orkunni í Borgarnesi; 261,70 kr. en hæst á tíu stöðum á Vesturlandi, 292,50 kr. allt frá N1 á Akranesi um Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali.

Líkt og undanfarin tvö ár er eldsneytisverð á Vesturlandi langlægst hjá Orkunni, Atlantsolíu og ÓB í Borgarnesi þar sem þessi félög ákváðu að stunda virka samkeppni. Íbúum annarsstaðar á Vesturlandi er þannig ráðlagt að hafa það sem reglu að tanka á bíla sína í Borgarnesi ef þeir eiga leið um. Verð fyrir lítra af díselolíu er nú 12% lægra í Borgarnesi en á þeim stöðum þar sem það er hæst.