
Ný stjórn FKA Vesturlandi: F.v. Jónína Erna Arnardóttir; Hlédís Sveinsdóttir, Hjördís Pálsdóttir, Gyða Steinsdóttir, Steinunn Helgadóttir og Björg Ágústsdóttir. Á myndina vantar Þuríði Hannesdóttur. Ljósm. Andrea Róbertsdóttir
Hjördís er nýr formaður FKA á Vesturlandi
Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin síðastliðinn laugardag á aðalfundi félagsins. Fundurinn fór fram á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar var Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi, kosin nýr formaður félagsins. Ásamt henni í stjórn eru Gyða Steinsdóttir fjármála- og skrifstofustjóri í Stykkishólmi sem er gjaldkeri, Steinunn Helgadóttir framkvæmdastjóri í Stykkishólmi er ritari, meðstjórnendur eru Hlédís Sveinsdóttir framkvæmdastjóri á Akranesi og Snæfellsnesi og Þuríður Hannesdóttir verslunareigandi búsett á Akranesi. Varakonur í stjórn voru kosnar Björg Ágústsdóttir lögfræðingur í Grundarfirði og Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri en hún býr í Borgarnesi.