
Sex sveitarfélög sameinast um Barnaverndarþjónustu Vesturlands
Viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu verður lagður fram til kynningar á 449. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 4. september nk. Samkvæmt honum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðilar að samstarfinu ásamt Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Samstarfið mun bera heitið Barnaverndarþjónusta Vesturlands og nær því til sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Núverandi samningur Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu er frá 2024.