
Svipmynd úr leiknum og Skagamenn í sókn. Ljósm. Jón Gautur Foto.
Baldvin bjargaði dýrmætu stigi á síðustu stundu
Mikil dramatík var á Hlíðarenda í gærkveldi þegar ÍA tryggði sér 2:2 jafntefli gegn Val í Bestu deild karla í fótbolta. Baldvin Þór Berndsen varð hetja Skagamanna þegar hann skallaði boltann í netið á fimmtu mínútu uppbótartíma og tryggði ÍA afar dýrmætt stig í baráttunni um sæti í efri hluta deildarinnar.