
Blóðgjöf óháð kynhneigð
Í dag, 1. september, tók gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem felur í sér samræmdar reglur um blóðgjöf fyrir alla einstaklinga, óháð kyni eða kynhneigð. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir þetta langþráðan áfanga: „Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni,“ segir Alma í tilkynningu.