
Útskolun Grábrókarveitu hefst í dag
Í dag, þriðjudaginn 1. septembar hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er. Áætlað er að vinnan taki 2–3 vikur. „Á meðan útskolun stendur yfir má gera ráð fyrir lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi. Útskolunin getur einnig valdið gruggi í vatninu, einkum á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. Ef vatnið er gruggugt er ráðlagt að láta kalt vatn renna um stund þar til það verður tært,“ segir í tilkynningu.