
Kjörstjórn í kjördeild II á Akranesi við upphaf kjörfundar. F.v. Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, Bryndís Böðvarsdóttir og Stefán Jóhann Hreinsson. Ljósm. mm
Tæplega fimmti hver íbúi kaus utan kjörfundar
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðastliðinn laugardag er fróðlegt að skoða tölur um kjörsókn. Flestir íbúar í Norðvesturkjördæmi búa á Akranesi. Þar voru 6.056 á kjörskrá og var heildar kjörsókn 82,83%, eða nærri meðaltali á landsvísu, sem var 82,5%. Fjórar kjördeildir eru á Akranesi og var kosningaþátttaka í þeim á kjördag frá 57,8% og upp í 67,61%. Kosningaþátttaka var mest í eldri hverfum bæjarins. 1.141 greiddu atkvæða utan kjörfundar og jafngildir það 18,84% kosningabærra íbúa.