
Hlutu styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ
Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær. Styrkþegar úr sjóðnum frá upphafi eru nú yfir 500 talsins. Sjóðurinn styður afreksnema til háskólanáms en við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.