Fréttir

true

Íbúafjöldinn á Akranesi tvöfaldast um helgina

Norðurálsmótið í knattspyrnu er nú hafið á Akranesi. Klukkan 11 fór skrúðganga allra þátttakenda frá Stillholti að Jaðarsbökkum þar sem mótið var sett. Leikskólabörn á Akranesi stilltu sér upp með fána og veifur og buðu gestina velkomna. Meðfylgjandi myndir sýna stemninguna og ekki síður fjöldan á mótinu. Miðað við að keppendur séu um tvö þúsund…Lesa meira

true

Banaslys í Borgarfirði

Þriðjudaginn 16. júní varð alvarlegt umferðarslys á Hálsasveitarvegi rétt norðan við Reykholt í Borgarfirði. Lentu tvær fólksbifreiðar saman sem ekið hafði verið úr sitt hvorri áttinni. Voru ökumenn og farþegi fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landsspítalans í Fossvogi þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést. Lögreglan á Vesturlandi greindi frá. Rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi fer…Lesa meira

true

Innviðafélagi verður falin stærri samgönguverkefni

Alþingi hefur samþykkt lög um stofnun innviðafélags sem ætlað er að annast undirbúning, fjármögnun, uppbyggingu og rekstur mikilvægra samgöngumannvirkja. Markmið laganna er að styðja við framkvæmd stórra samgönguverkefna og skapa skýrari umgjörð um fjármögnun þeirra. Innviðafélagið verður í eigu ríkissjóðs og mun halda utan um verkefni á borð við jarðgöng og aðrar umfangsmiklar samgönguframkvæmdir í…Lesa meira

true

Andlát – Ingimar Sveinsson

Hinn landskunni bóndi, hestamaður og fræðimaður Ingimar Sveinsson er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928, sonur hjónanna Sveins Jónssonar og Sigríðar Fanneyjar Jónsdóttur sem lengi voru bændur á Egilsstöðum á Völlum. Eiginkona Ingimars var Guðrún Gunnarsdóttir en hún lést árið 2016. Þau eignuðust fimm börn. Ingimar ólst upp á Egilsstöðum, varð…Lesa meira

true

Fyrstu meistaranemar í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

Háskólinn á Akureyri brautskráir í dag frá Hjúkrunarfræðideild fyrstu níu stúdentana úr ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Námið er 60 ECTS viðbótarnám á meistarastigi kennt í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og veita skólarnir prófið sameiginlega. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð UMFG

Ungmennafélag Grundarfjarðar fagnaði starfsemi félagsins á þjóðhátíðardaginn með skemmtilegri dagskrá. Byrjað var á að etja kappi í Grundar- og Kvernárhlaupinu og svo var keppt í sundi að hlaupi loknu. Að keppni lokinni var boðið upp á grillaðar pylsur ásamt því að veita viðurkenningar fyrir árangur síðasta árs.Lesa meira

true

Mikil aukning á erlendri netverslun í apríl

Rannsóknasetur verslunarinnar tekur mánaðarlega saman tölur um umfang erlendrar netverslunar Íslendinga. Nú hafa tölur aprílmánaðar verið birtar og nemur erlend netverslun tæpum 2,8 milljörðum króna í apríl. Er það tæplega 18% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur erlend netverslun aukist um 11,1% sé miðað við sama tímabil í fyrra.Lesa meira

true

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður fyrstu helgina í júlí

Dagana 3. til 5. júlí í sumar fer fram bæjarhátíðin „Heim i Búðardal“ og er undirbúningur í fullum gangi. Fimmtudagskvöldið 2. júlí er fyrirhugað að Nikkólína hefji dagskrána með tónleikum en fólk er hvatt til að taka dansskóna með til að lífga upp á fasta liði og gamla takta. Föstudagurinn verður helgaður Söngveislu í Dalabúð…Lesa meira

true

Kvennakórar komu saman til æfinga og söngs

Dagana 11.-13. júní sl. tók Kvennakórinn Ymur frá Akranesi þátt í Landsmóti íslenskra kvennakóra. Kórinn var þó án nokkurra af sínum konum sem höfðu kosið að hefja sumarfríið fyrr. Mótið er haldið á vegum Gígjunnar, sem er Landssamband íslenskra kvennakóra, og fer fram á mismunandi stöðum á þriggja ára fresti. Að þessu sinni voru gestgjafarnir…Lesa meira

true

Tveir laxar komu við opnun Laxár

Laxá í Leirársveit var opnuð á þriðjudaginn en það voru leigutakarnir og landeigendur sem í sameiningu opnaðu ána eins og undanfarin mörg ár. Tveir laxar komu á land og annar þeirra veiddist í Eyrarfossi en það var Ólafur Johnson sem veiddi hann. „Þetta var 83 sentimetra lax,” Ólafur. „Gaman að þessu. Fyrsti laxinn veiddist í…Lesa meira