Eyrarfoss gaf lax fyrsta veiðidaginn. Ljósm. Jón Pétur Sveinsson

Tveir laxar komu við opnun Laxár

Laxá í Leirársveit var opnuð á þriðjudaginn en það voru leigutakarnir og landeigendur sem í sameiningu opnaðu ána eins og undanfarin mörg ár. Tveir laxar komu á land og annar þeirra veiddist í Eyrarfossi en það var Ólafur Johnson sem veiddi hann. „Þetta var 83 sentimetra lax," Ólafur. „Gaman að þessu. Fyrsti laxinn veiddist í Vaðstrengjum og það var Haukur Geir Garðarsson sem veiddi hann. Það sluppu laxar og einn verulega góður í Sunnefjufossi, það var líf,“ sagði Ólafur ennfremur.