Banaslys í Borgarfirði

Þriðjudaginn 16. júní varð alvarlegt umferðarslys á Hálsasveitarvegi rétt norðan við Reykholt í Borgarfirði. Lentu tvær fólksbifreiðar saman sem ekið hafði verið úr sitt hvorri áttinni. Voru ökumenn og farþegi fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landsspítalans í Fossvogi þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést. Lögreglan á Vesturlandi greindi frá. Rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi fer með rannsókn málsins.