
Innviðafélagi verður falin stærri samgönguverkefni
Alþingi hefur samþykkt lög um stofnun innviðafélags sem ætlað er að annast undirbúning, fjármögnun, uppbyggingu og rekstur mikilvægra samgöngumannvirkja. Markmið laganna er að styðja við framkvæmd stórra samgönguverkefna og skapa skýrari umgjörð um fjármögnun þeirra. Innviðafélagið verður í eigu ríkissjóðs og mun halda utan um verkefni á borð við jarðgöng og aðrar umfangsmiklar samgönguframkvæmdir í samræmi við samgönguáætlun. Innviðaráðherra mun geta gert samninga við félagið um uppbyggingu og rekstur einstakra verkefna. Fjármögnun verkefna mun meðal annars byggjast á tekjum af notendagjöldum, svo sem veggjöldum, lántöku á markaði og eftir atvikum framlögum frá ríkinu. Með þessu verður til skýrari og sjálfbærari umgjörð um uppbyggingu stórra samgönguinnviða til framtíðar.