Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður fyrstu helgina í júlí

Dagana 3. til 5. júlí í sumar fer fram bæjarhátíðin „Heim i Búðardal“ og er undirbúningur í fullum gangi. Fimmtudagskvöldið 2. júlí er fyrirhugað að Nikkólína hefji dagskrána með tónleikum en fólk er hvatt til að taka dansskóna með til að lífga upp á fasta liði og gamla takta. Föstudagurinn verður helgaður Söngveislu í Dalabúð þar sem nýr flygill verður vígður og rennur aðgangseyrir óskiptur í flygilsjóð. Aðrir dagskrárliði eru samkvæmt dagskrá (sem er enn í mótun); skottsala, veltibíll, bátarallý, varðeldur, sundlaugaþraut svo eitthvað sé nefnt. Þá syngja einnig Daladætur og skemmta í Vatnshornskirkju þar sem boðið veður upp á kirkjukaffi og saga saumaklúbbsins sýnd. Síðan verð hjónin og rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín með bókmenntapartý á laugardeginum, sem ber yfirskriftina: Mikilhvellur í Dölunum – skapand óreiða í friðsælli sveit.