
Iðkendur og aðrir gestur gæddu sér á gómsætum grillpylsum. Ljósm. tfk
Uppskeruhátíð UMFG
Ungmennafélag Grundarfjarðar fagnaði starfsemi félagsins á þjóðhátíðardaginn með skemmtilegri dagskrá. Byrjað var á að etja kappi í Grundar- og Kvernárhlaupinu og svo var keppt í sundi að hlaupi loknu. Að keppni lokinni var boðið upp á grillaðar pylsur ásamt því að veita viðurkenningar fyrir árangur síðasta árs.